Lesa frétt
10.1.2012
Ungur ÍRingur gerir það gott á skíðamóti í Austurríki
Sigrún Lilja Kristjánsdóttir sem æfir skíði með ÍR (5 – 8 ára) tók nýlega þátt í skíðamóti í Katschberg í Austurríki þar sem hún keppti stolt í nýju ÍR skíðadeildarbúningnum. Sigrún sem ekki á langa sögu í skíða iðkun hefur verið undir handleiðslu Önnu Guðmundsdóttur þjálfara átta ára og yngri í skíðadeild ÍR og sýndi heilmikil tilþrif á þessu móti þar sem hún hafnaði í þriðja sæti í sínum riðli og sjöunda sæti yfir heildina, af tugum keppenda. Á myndinni má sjá Sigrúnu glaða í keppnistreyju númer 53.