Lesa frétt
10.3.2010
Arnar Ingi Kristgeirsson sigursæll á Jónsmóti
Um síðustu helgi var haldið hið árlega Jónsmót á Dalvík fyrir aldurshópinn 9 - 12 ára. ÍR-ingar fóru með góðan hóp keppenda, sem stóðu sig allir með prýði. Athygli vakti frammistaða Arnars Inga Kristgeirssonar í flokki 12 ára drengja en hann kom heim með fimm verðlaun. Arnar Ingi varð í 2. sæti í svigi, 4. sæti í stórsvigi, 3. sæti í sundi+stórsvigi, 3. sæti í alpatvíkeppni og 3. sæti í sundi.

Arnar Ingi Kristgeirsson ásamt Sigurði Hólm, þjálfara