Lesa frétt
8.3.2010

Ronja María stendur sig vel í Noregi

ÍR-ingurinn Ronja María Grímsdóttir, sem um þessar mundir er búsett í Noregi, keppti í svigi og stórsvigi í Kongsberg sl. helgi.  Hún stóð sig mjög vel og sigraði í stórsvigi og varð önnur í svigi í flokki 9. ára stúlkna.  Ronja María á ekki langt að sækja skíðafærnina en pabbi hennar er hinn kunni skíðaþjálfari ÍR-inga til margra ára, Grímur Rúnarsson.