Lesa frétt
7.3.2010

Stórsviginu í Stafdal aflýst - æfing í Oddsskarði

Í morgun blés hressilega í Stafdal og þegar klukkan var farin að halla í tíu í morgun  var útséð um að hægt yrði að halda bikarmótinu áfram.  Keppni í stórsvigi var því aflýst en hins vegar var skíðasvæðið í Oddsskarði opið og héldu Reykjavíkurliðin þangað í staðinn á æfingu.  Komið var í Oddsskarð um hálf ellefu og skíðað í roki og hita til kl 16.

Fékkst út úr deginum hin besta æfingatörn og ekki skemmdi fyrir að Ragnheiður Brynja Pétursdóttir í Ármanni átti afmæli og fengu allir sinn skerf af afmæliskökunni enda afmælissöngurinn sunginn a.m.k. tvisvar fyrir hana. Áætlaður komutími með flugi til Reykjavíkur er svo kl. 20:30 í kvöld.