Lesa frétt
6.3.2010

Keppni í svigi lokið í Stafdal - Sigurður í 2. sæti.

Keppni í svigi lokið í Stafdal - Sigurður í 2. sæti.

Í dag var keppt í svigi á Bikarmóti Skíðasambands Íslands í flokki 13 - 14 ára.  Sex ÍR-ingar voru mættir til leiks í góðum gír enda búið að æfa vel dagana á undan.  Í flokkir 13 ára stráka náði Sigurður Hauksson 2. sætinu eftir mjög góða seinni ferð en í flokki 14 ára stráka hafnaði Kristinn Logi Auðunsson í 4. sæti og Svanur Óðinsson í 8. sæti.  Magnús Már Pétursson var með góðan tíma eftir fyrri ferð en eftir góða keyrslu niður brautina í seinni ferð, hlekktist honum á í síðustu portum og féll úr leik.  Hjá stúlkum keppti Unnur Ársælsdóttir í flokki 13 ára en henni hlekktist á í fyrri ferð.  Hins vegar náði hún mjög góðum tíma í seinni ferð.  Í flokki 14 ára stúlkna keppti Fanney Rún Jónsdóttir og hafnaði í 7. sæti og vantaði einungis 40 hundraðshluta úr sekúndu til að ná verðlaunasæti.  Sannarlega frábær árangur hjá okkar krökkum.

Á morgun keppa krakkarnir í stórsvigi og hefst brautarskoðun kl 09:15.

Einnig eru komnar fleiri myndir inn á Flickir

Heilarúrslit má sjá á vefslóðinni  Úrslit