Lesa frétt
5.3.2010

Bikarmót í Stafdal 6. og 7 mars


Laugardaginn 6. mars og sunnudaginn 7. mars verður bikarmót í flokki 13-14 ára í Stafdal á Fjarðarheiði.  Öll Reykjavíkurliðin senda keppendur á mótið og hafa krakkarnir verið að æfa saman frá því á fimmtudag.  Þetta eru krakkar úr ÍR, Víkingi, Fram, KR, og Ármanni en einnig eru krakkar úr Breiðabliki með í hópnum.  Reykjavíkurliðin keppa sem eitt lið undir merki Skíðaráðs Reykjavíkur.  Samvinna liðanna er til fyrirmyndar og góður andi meðal keppenda.  ÍR-ingarnir í hópnum eru sex að þessu sinni: Fanney Rún, Unnur, Magnús Már, Svanur, Sigurður og Kristinn Logi.  Á morgun laugardag verður keppt í svigi og á sunnudaginn í stórsvigi. Hópurinn heldur svo heimleiðis seint á sunnudag.