3.5.2012

Það var mikið líf og fjör á ÍR-vellinum þann 1. maí. Þá fór þar fram Subway-mót fyrir 6. flokk drengja og höfðu foreldrar pilta úr ÍR veg og vanda að því í samvinnu við fyrrnefndan matsölustað sem vafalítið er með þeim vinsælustu og höfðar ekki síst til yngri kynslóðarinnar.
Þátttakendurnir komu úr tíu félögum: Aftureldingu, Haukum, ÍA, ÍBV, Keflavík, Njarðvík, Kjalarnesi, Selfossi og Skallagrími, auk ÍR, og ...
19.11.2011
Vegna móts í Seljaskóla þá mun æfing sunnudaginn 19. nóvember falla niður. Næsta æfing verður sunnudaginn 27. nóvember.
10.10.2011
Laugardaginn 17. september síðast liðinn hélt knattspyrnudeild Íþróttafélags Reykjavíkur sína árlegu uppskeruhátíð fyrir yngri flokka. Hátíðin var vel sótt bæði af iðkendum og foreldrum. Allir yngriflokkar fengu afhenta liðsmynd að gjöf og einnig voru ýmis einstaklings verlaun veitt. Hér fyrir neðan eru þau helstu og nöfn iðkenda sem valin voru úr hópi margra efnilegra knattspynu-manna/kvenna.
12.9.2011
Íþróttafélagið Leiknir og Knattspyrnudeild ÍR undirrituðu samkomulag um samstarf í kvennaknattspyrnu þann 6. September sl. Þannig hefur verið ákveðið að félögin verði með sameiginlegar æfingar og sendi sameiginlegt lið til keppni í 7.-3. flokki kvenna í knattspyrnu undir merkinu ÍR/Leiknir.
Helstu ástæður þess að ákveðið var að fara út í samstarf félaganna eru....
30.8.2011

Nokkrir sprækir drengir úr 5.flokki Knattspyrnudeildar Ír fóru á dögunum á hlaupanámskeið hjá Silju Úlfarsdóttur. Silja er menntaður einkaþjálfari og Hraða- og hlaupaþjálfun er hennar sérsvið. Hún fær mikið af íþróttafólki til sín sem vill bæta hraða, snerpu, hlaupastíl og sprengikraft
Drengirnir mættu hjá henni á FH svæðið í Kaplakrika í fjögur skipti. Hún lagði mikla áherslu á hlaupatækni(hraðaaukningar og hnélyftur),spretti-fall og magaspretti,hopp,armbeygjur og styrktaræfingar. Þessar æfingar áttu strákarnir að tileinka sér. Hún tók tímann á þeim í sprettum í fyrsta og síðasta tíma. Það var mjög gaman fyrir strákana að sjá hvað þeir höfðu bætt sig á mili tíma. Silja hafði orð á því strax í fyrsta tíma hvað strákarnir væru flottir,áhugasamir og fljótir að ná því sem hún var að kenna þeim. Það verður svo gaman að fylgjast með hvernig þeir geta nýtt sér þessa tækni á fótboltaæfingunum.
Tíma þeirra má sjá
HÉR.
22.8.2011

Úrtökumót KSÍ 2011 fyrir pilta fædda árið 1996 fer fram á
Laugarvatni í ár og munu ÍR-ingar eiga þar þrjá fulltrúa. Þetta eru þeir
Benedikt Óli Sævarsson, Hilmir Orri Helgason og Andri M. Eysteinsson. Þessir
efnilegu strákar eru gott dæmi um það frábæra starf sem unnið er í yngri
flokkum hjá ÍR.
Við óskum þeim félögum góðs gengis í þessu verkefni.
2.8.2011
Stefán Þór Pálsson og Reynir Haraldsson leikmenn knattspyrnudeildar ÍR voru báðir valdir í U17 ára landslið Íslands sem tekur nú þátt í Norðurlandamóti sem haldið er hér á landi.
29.6.2011

Íþróttaskólinn er starfræktur á veturna, frá septemberbyrjun og fram í miðjan maí. Um er að þrjá hópa (tvo 3-4 ára og einn 5-6 ára). Einn hópur er á laugardagsmorgnum en hinir tvo seinniparta í miðri viku. Hver tími er 45 mínútur. Aðstaðan er í íþróttasal að Skógarseli 12, 109 Reykjavík.
Í Íþróttaskólanum reyna börn á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu og líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa og í leikfimi sem þessari reynir á þau öll. Nánari upplýsingar veitir Sigrún íþróttafulltrúi ÍR í síma 864-0061 eða
sigrun@ir.is
23.6.2011
Dagskrá á svæði ÍR 23.júní
Hlaup kl.16:00-16:30
Allir hlaupa í hóp á eftir kyndilbera. Fyrstur kemur kyndilberi, svo iðkendur í keppnisbúningum og aftast kemur almenningur.
Íþróttastöðvar kl.16:30-18:00
Dans, Júdó, Frjálsar, Karfa, Fótbolti, Handbolti, Keila, Skíði, TKD
Þeir sem geta mæta í þeim galla sem einkennir þeirra íþrótt. Við viljum sjá skíðahjálminn, danskjólinn, handboltann, legghlífarnar, hvíta gallann, gaddaskóna um hálsinn, körfubolinn og hvað eina. Eins viljum við sjá sem flesta úr hverfinu, unga sem aldna.
Ath. allir sem taka þátt á íþróttastöðvunum, fá viðurkenningu fyrir þátttöku og vatnsbrúsa að gjöf.