423fdceddc8c82















Tækni- og leikþjálfun 3.fl.kk

Tækni og leikfræðiþjálfun

3. flokks karla

 

 

Tækni og leikfræðiþjálfun 3. flokks karla (15-16 ára)

 

Á þessu tímabili kemst betra jafnvægi á hreyfingar, samhæfing hreyfinga verður betri vegna aukins vaxtar í vöðvum og líffærum sem leiðir af sér jákvæða þætti í þjálfuninni. Nauðsynlegt er að leikfræði sé æfð markvisst bæði á æfingum og utan æfinga, t.d á fundum. Þar er hægt að útskýra leikkerfi og áherslur í leikskipulagi enda hafa unglingar á þessum aldri meiri áhuga á fræðilegum þáttum en áður. Halda þarf áfram að slípa tæknilega hæfileika en vegna aukins vöðvamassa er nauðsynlegt að leggja áherslu á hraða- og þolþjálfun. Leikskilningur skal hafður í fyrirrúmi með auknum leikfræðilegum og krefjandi æfingum í minni hópum. Kynna skal keppnis- og afreksíþróttamennsku og þann hugsunarhátt sem er nauðsynlegur til að árangur náist. Afreksstefna félagsins hefst hjá drengjum í 3. flokki. Þjálfa þarf leikmenn í að setja sér markmið og þroska hjá sér metnað til árangurs. Sérhæfing skal hefjast á þessum aldri og því er nauðsynlegt að þeir leikmenn sem eru í fleiri en einni íþróttagrein fari að huga að því að velja sér eina íþróttagrein ef viðunandi árangur á að nást. Félagsleg verkefni þurfa að skipa stóran sess en þau efla félagsþroska auka samkennd og samvinnu auk þess sem þau eru góð tilbreyting frá hefðbundnum æfingum og draga úr líkum á því að iðkendur hætti að æfa knattspyrnu hjá félaginu. Einnig þarf að leita leiða innan félagsins til að koma til móts við þá unglinga sem ekki vilja verða afreksmenn í knattspyrnu en vilja áfram leggja stund á knattspyrnu.

 

 

 

Meginmarkmið í þjálfun:

 

Tækni:

·         Tækniatriði tengd leikæfingum og flóknum tækniæfingum, samsettar æfingar

·         Tækni einstaklings fínpússuð og fullkomnuð

·         Sköllun

·         Hoppspyrna

·         Fyrirgjafir eftir;

-      einleik

-      samspil, s.s. veggsendingu, knattvíxlun, framhjáhlaup, langar sendingar

·         Fága og styrkja enn frekar þau tækniatriði sem þegar hefur verið farið yfir

 

 

Leikfræði:

·         Leikfræði einstaklings

·         Markskot af ýmsum toga;

o   eftir að hafa leikið á mótherja (1:1)

o   eftir móttöku á hlaupum og á þröngu svæði

o   eftir eina og tvær snertingar

o   viðstöðulaust eftir jörðu og á lofti

 

Návígi

·         að komast inn í sendingu mótherja

·         návígi (tæklingu), rennitækling

·         pressa (rétt varnarstaða – ná knetti af mótherja)

 

Leikfræði hóps, sóknarleikur;

·         samleikur leikmanna, ýmis afbrigði (veggsending, knattvíxlun, framhjáhlaup)

·         hreyfing án bolta, aðstoð við knatthafa

·         undirstöðuatriði liðssamvinnu, sókn, dýpt, fríhlaup, vídd, hreyfing, opna svæði, aðstoð

·         skapa marktækifæri, markskot

 

 

 

Leikfræði hóps, varnarleikur;

·         gæsla maður á mann (1:1), þar sem leikmaður hefur bolta

·         gæsla maður á mann (1:1), þar sem leikmaður hefur ekki bolta

·         svæðisvörn

·         undirstöðuatriði liðsamvinnu, vörn; dýpt, gæsla, lokun svæða, samþjöppun, völdun

·         samvinna leikmanna, yfirtaka á leikmanni frá félaga

·         rangstaða

·         Ýmis konar samsetning liðs (jafnmargir í liði, færri, fleiri)

 

Undirstöðuatriði liðssamvinnu, vörn:

·         dýpt, gæsla, loka svæði, samþjöppun, völdun

 

Návígi:

·         að komast inn í sendingu mótherja

·         návíg (tækling), rennitækling

·         pressa þar sem áhersla er lögð á rétta varnarstöðu

 

 

Leikfræði liðs, föst leikatriði

·         vítaspyrna

·         rétt innkast og hreyfing leikmanns án bolta

·         hornspyrna (í sóknar- og varnarleik)

·         aukaspyrnur (beinar og óbeinar)