423fdceddc8c82















Fréttir
18.5.2012

Vinningshafar í tippleik meistaraflokks karla

Vinningshafar í tippleik meistaraflokks karla fyrir skemmstu eru eftirfarandi. Frekari upplýsingar gefur Axel Kári.

1.sæti - Guðbjörg Björgvinsdóttir

2.sæti - Ólafur Sigurðsson

3.sæti - Björgvin Stefánsson

14.5.2012

Knattspyrnudeild ÍR gerir samstarfssamning við Hertz bílaleigu

Nýverið skrifuðu Hertz bílaleiga og knattspyrnudeild ÍR undir 3ja ára samstarfssamning, þar með verður Hertz einn af aðalstuðningsaðilum knattspynudeildar.

Hluti af samning er nafnabreyting á leikvelli sem hér eftir kallast Hertz völlurinn.  Aðkoma Hertz er glæsileg og til marks um þá uppbyggingu sem er í félaginu.

Á myndunum sjást Hendrik Berndsen stjórnarfomaður Hertz, Ída Jensdóttir fomaður knattspyrnudeildar og Hjálmar Sigurþórsson formaður ÍR skrifa undir samninginn, ásamt leikmönnum og þjálfurum meistaraflokka félagsins.

2012-05-10-067

2012-05-10-071


3.5.2012

Subway knattspyrnumótið í 6. flokki karla fór fram 1. maí

IRogSkolausi

Það var mikið líf og fjör á ÍR-vellinum þann 1. maí. Þá fór þar fram Subway-mót fyrir 6. flokk drengja og höfðu foreldrar pilta úr ÍR veg og vanda að því í samvinnu við fyrrnefndan matsölustað sem vafalítið er með þeim vinsælustu og höfðar ekki síst til yngri kynslóðarinnar.

Þátttakendurnir komu úr tíu félögum: Aftureldingu, Haukum, ÍA, ÍBV, Keflavík, Njarðvík, Kjalarnesi, Selfossi og Skallagrími, auk ÍR, og ...

30.4.2012

2.fl.kv. í knattspyrnu vann sinn riðil í Faxaflóamótinu

Sameiginlegt lið ÍR og Fylkis í 2. fl. kvenna sem stofnað var núna á vormánuðum fer vel af stað en stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu sinn riðil í Faxaflóamótinu. Mótið endaði með hreinum úrslitaleik milli Fylkir/ÍR og ÍBV þar sem jafntefli dugði okkar stelpum. Eftir að Fylkir/ÍR hafði verið mun sterkari aðilinn í leiknum skoruðu ÍBV óvænt mark úr einni af fáum skyndisóknum þeirra er um 4 mínútur voru eftir af leiknum. Með harðfylgi jöfnuðu stelpurnar okkar leikinn á síðustu mínútu leiksins með marki sem dugði til að þær enduðu sem sigurvegarar riðilsins. Fín byrjun þetta og það verður gaman að fylgjast með þessu liði í sumar.

27.4.2012

SUBWAY mót ÍR 1. maí (6. fl. karla í knattspyrnu)

subway IR haus3

SUBWAY mót ÍR verður haldið þriðjudaginn 1. maí á ÍR velli. Það er 6. fl. karla í knattspyrnu sem stendur að mótinu.

25.4.2012

Aðalfundur Íþróttafélags Reykjavíkur

Aðalfundur Íþróttafélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl 2012  kl. 20:00 í félagsheimili ÍR  Skógarseli 12 Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.
4. Lesnir og skýrðir endurskoðaðir reikningar.
5. Lagabreytingar.
6. Ákveðin árgjöld.
7. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
8. Kosinn formaður.
9. Kosnir aðrir stjórnarmenn og varastjórnarmenn.
10. Kosnir tveir skoðunarmenn.
11. Önnur mál.

Léttar veitingar verða boðnar að loknum fundi.

18.4.2012

Gleðilegt sumar ÍR'ingar

sumardagurinn fyrstiÞrjár deildir frá ÍR ætla að kynna starfsemi sína í öllu fjörinu með ÍTR. Það er knattspyrnudeildin, takekwondódeildin og körfuknattleiksdeildin.

Dagskráin fer fram við tjörnina í Hólmaseli.

16.4.2012

Aðalfundur Íþróttafélags Reykjavíkur 25.apríl

Aðalfundur Íþróttafélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl 2012  kl. 20:00 í félagsheimili ÍR  Skógarseli 12 Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.
4. Lesnir og skýrðir endurskoðaðir reikningar.
5. Lagabreytingar.
6. Ákveðin árgjöld.
7. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
8. Kosinn formaður.
9. Kosnir aðrir stjórnarmenn og varastjórnarmenn.
10. Kosnir tveir skoðunarmenn.
11. Önnur mál.

Léttar veitingar verða boðnar að loknum fundi.

Fyrst birt á heimasíðu ÍR 16. mars 2012

3.4.2012

Ársfundur Barna- og unglingaráðs 12.apríl kl.19:00

Ársfundur barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar ÍR verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl kl. 19:00 í ÍR heimilinu.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á uppeldisstarfi knattspyrnudeildarinnar til þess að mæta á fundinn:

Fundarefni

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi barna og unglingaráðs

  3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir 2011

  4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár

  5. Kosning stjórnar

  6. Önnur mál

Ráðið er skipað 7 einstaklingum og hafa allir gefið kost á sér til áframhaldandi setu fyrir utan einn.  Þeir sem hefðu áhuga á að taka sæti í ráðinu eru hvattir til að gefa sig fram við formann ráðsins.

Á meðfylgjandi link má sjá skilgreiningu á hlutverki barna- og unglingaráðs:

http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/KnattspyrnudeildIR/Starfslysingar/Barnaogunglingarad/

 

Með kveðju,

Guðmundur Sigurðsson

Formaður barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar ÍR