Lesa frétt
Þrír ÍR-ingar í úrtökuhóp U-19 ára landsliðsins

Miðvikudaginn 10. febrúar var kynntur úrtökuhópur fyrir U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu karla. ÍR-ingar eiga þar hvorki meira né minna en þrjá fulltrúa en fá lið geta státað af slíkum árangri. Þetta eru ÍR-ingarnir Sindri Snær Magnússon sem er fæddur 1992 og þeir Brynjar Örn Sigurðsson og Jón Gísli Ström og eru þeir fæddir 1993. Þetta sýnir hversu vel er staðið að málum innan yngri flokka hjá ÍR.
Óskum við þeim þrímenningum til hamingju með þennan árangur.