Lesa frétt
Frístundakortið og greiðsluseðlar hjá ÍR
Núna hafa greiðsluseðlar verið sendir út fyrir handboltadeild, knattspyrnudeild, körfuboltadeild, júdódeild og keiludeild og eru á gjalddaga/eindaga 5. febrúar.
Dansdeild, frjálsar, skíðadeild og Tae kwon do deild eru ennþá með opið í Frístundakortinu næstu vikuna og greiðsluseðlar verða sendir út fyrir næstu mánaðarmót á gjalddaga/eindaga 1. mars.
Auglýst hefur verið í tölvupósti til allra deilda og flokka með fyrirkomulag innheimtu vorannar frá því í desember og ætti því ekki að koma á óvart lokun Frístundakorts og greiðsluseðlar.
Þótt Frístundakortið sé lokað í Rafrænni Reykjavík þá er ekki of seint að ráðstafa styrknum því aðeins þarf eitt símtal við mig og málið er leyst.
Þá er sjálfsagt að skipta greiðslum á kreditkort sé þess óskað.
Þau börn sem koma í félagið eftir að greiðsluseðlar fara út eru sett í Frístundakortið um leið og þau eru skráð, og fyrir annarlok sendi ég greiðsluseðla á þau börn sem nýta það ekki.
Með kærri þökk.
Elfa á skrifstofunni
s. 587 7090.