Lesa frétt
Nýr þjálfari hjá meistaraflokki kvenna í knattspyrnu

Guðbjartur Halldór Ólafsson hefur verið ráðinn sem þjálfari hjá meistaraflokk kvenna ÍR í knattspyrnu og tók hann til starfa í byrjun janúar. Guðbjartur kemur frá Höfn í Hornafirði og var leikmaður með Sindra, Aftureldingu og Njarðvík. Guðbjartur er við nám í íþróttafræði við Háskóla Íslands. Framundan er spennandi og krefjandi uppbyggingarstarf hjá meistaraflokki kvenna ÍR og við bjóðum Guðbjart velkomin til starfa hjá okkur.