Fyrstil leikur m.fl. karla í Reykjavíkurmótinu, tölulegar staðreyndir
Byrjunarlið ÍR :
Steini
Elvar-Atli Guðjóns-Kalli-Axel
Davíð-Trausti-Sindri-Kristján Ari
Árni
Haukur
Leikurinn fór rólega af stað, en á 5.mínútu komust KR-ingar í gott færi eftir að Atli hitti ekki boltann þegar hann ætlaði að hreinsa útaf, og Ingólfur Sigurðsson komst einn gegn Steina sem lokaði vel og Ingó skaut að lokum í stöngina.
Nokkrum mínútum síðar átti Sindri ágæta tilraun af löngu færi en boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og fór svo rétt framhjá markinu. Hornspyrnan var svo illa nýtt og KR hreinsaði frá.
KR átti langskot á 23.mín, en boltinn yfir markið.
Á 28.mínútu komust KR-ingar yfir eftir klaufaskap í vörninni. Boltinn barst til Ingólfs úti við endalínu, hann labbaði framhjá Elvari og lagði boltann út á markteig á Skúla Jón Friðgeirsson sem þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að leggja boltann í markið. 0-1
Fjórum mínútum síðar slapp Sindri einn í gegn eftir laglegann undirbúning hjá Kristjáni Ara, en Sindri fór illa að ráði sínu og skaut í markmanninn.
Fyrsta gula spjaldið í leiknum kom á 37.mín. KR-ingur tæklaði Trausta fyrirliða og fékk að launum spjald.
Rúmri mínútu síðar átti Kristján Ari svo glæsilega sendingu frá hægri vængnum beint á kollinn á Davíð, sem skallar á markið, markvörðurinn ver, en Davíð fylgir sjálfur eftir og þrumar boltanum í slána og inn af stuttu færi, vel klárað og ÍR aftur komið inní leikinn. 1-1
Undir lok hálfleiksins er svo brotið á Trausta, boltanum sparkað í burtu og einn varnarmanna KR fær gult spjald fyrir.
1-1 í hálfleik og STRÁKARNIR OKKAR láta Loga Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara og núverandi þjálfara KR, svo sannarlega hafa eitthvað til að brjóta heilann yfir í hálfleik.
Eftir tæpar 2 mínútur í síðari hálfleik reyna KR-ingar langa sendingu fram sem Axel virðist lesa vel, en hann misreiknar eitthvað aðstæður og Gunnar Örn Jónsson sleppur einn gegn Steina, sem gerir vel og svæfir hreinlega sóknarmanninn. Gunnar reynir svo asnalega hælspyrnu sem Axel þrumar í burtu og hreinsar því upp skítinn eftir sjálfann sig, vel gert.
Laugi gerði þrjár breytingar á upphafsmínútum hálfleiksins. Kristján Ari, Elvar og Sindri komu útaf og Jón Gísli, Eyþór og Hrannar komu inná.
Næstu mínútur voru frekar rólegar, en KR-ingar fengu horn á 55.mín, og náðu skalla, en boltinn framhjá.
Gunnar Kristjánsson slapp í gegn 2 mínútum síðar en skaut framhjá. Stuttu síðar átti Óskar Örn Hauksson langskot en það var engin hætta.
Á 62.mínútu sendi Árni Freyr boltann á Jón Gísla Ström, kornungann pilt, sem var ALEINN í heiminum fyrir framan markið, en honum virtist mjög brugðið að fá þetta tækifæri og lét markmanninn verja frá sér.
Tuttugu mínútum fyrir leikslok átti svo Gunnar Örn langskot – beint á Steina.
Á 74.mín komst Haukur í góðann séns eftir góðann undirbúning hjá Árna Frey, en fyrsta snertingin sveik hauk og það færi rann útí sandinn.
Aðeins mínútu síðar komust KR-ingar svo aftur yfir. Löng sending yfir Hrannar sem var því miður greinilega með augun of mikið á boltanum, og slúttið var einfalt, töts – skot – mark. 1-2
Síðasta skiptingin okkar er gerð, Haukur kemur út fyrir Andra Björn.
Þriðja gula spjaldið á KR kom svo á 77.mín fyrir mótmæli. Fyrsta og eina spjaldið okkar fékk svo Atli Guðjóns á 79.mín fyrir brot.
Eftir þetta róaðist leikurinn full mikið, og mótspyrna okkar var ekki mikil á lokamínutunum.
KR skoraði svo þriðja markið á loka mínútu leiksins. Einfalt spil í gegnum vörnina sem var á hælunum, og færið klárað á yfirvegaðann hátt. 1-3
Rétt undir lokin fékk Andri Björn svo gott skotfæri en skotið fer beint í varnarmann, og í kjölfarið bruna KR-ingar upp og aftur kemur löng sending yfir Hrannar, en nú fór skotið yfir.
Lokatölur 1-3 tap.
Tap var það, en spilamennskan var oft á tíðum mjög góð, við vinnum þá bara næst.
Maður leiksins var valinn Trausti ,,stálmús,, Ríkharðsson.
Og örfá lokaorð frá þjálfaranum: Fyrri hálfleikur var mjög góður, en síðari hálfleikur var erfiðari. Annars margir jákvæðir punktar í kvöld.