Lesa frétt

Fyrsti vinningur í happdrætti ÍR fellur á miða nr. 2139

Kæru ÍR-ingar og aðrir velunnarar,
Þau leiðu mistök urðu við úrdrátt vinninga í happdrætti Knattspyrnudeildar ÍR 2009 að fyrsti vinningur var dreginn á óseldan miða. Beðist er velvirðingar á þessu og mistökin hér með leiðrétt. Fyrsti vinningur fellur á númer 2139. Vinningsnúmer má sjá hér. Vinninga er hægt að nálgast á skrifstofu ÍR milli kl. 9:00 og 16:00 alla virka daga eða með því að hringja í síma 587 7080.
Knattspyrnudeild ÍR þakkar kærlega fyrir stuðninginn og óskar ÍR-ingum gleðilegra jóla.