Lesa frétt

Niðurstöður rannsókna á ánægju iðkenda ÍR kynntar -Ánægjuvog

Kynningarfundur á ánægjuvog ÍR verður haldinn á 2.hæð ÍR heimilis þriðjudaginn 15.desember kl.12:00-13:00.

ÍBR í samstarfi við Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðing úr HR, hefur hrint í framkvæmd verkefni sem snýr að því að auka ánægju iðkenda af starfinu.
Verkefnið snýst að megninu til um tvo þætti:
1.     Ánægjukönnun meðal iðkenda hverfafélaganna. Rannsókn þessi var lögð fyrir í nóv.'09 hjá 13-15         ára iðkendum ÍR og verða nú kynntar niðurstöður.
2.     Leiðarvísir félaganna verður gefin út, ætlaður þjálfurum fyrst og fremst.

Mjög góð þátttaka hefur verið hjá iðkendum félagsins í ánægjukönnuninni, niðurstaða könnunarinnar verður kynnt á hádegisfundinum. Það verður fróðlegt að sjá og jafnframt mjög mikilvægt að fá þessar niðurstöður fyrir okkur til að vinna með. Leiðarvísirinn á að vekja athygli á ýmsum þáttum sem allir þjálfarar þurfa að taka mið af.   Ég vonast til að sem flest ykkar mætið á þennan fund, okkur er það mikilvægt að vita hvar við stöndum og hvað við getum gert til að halda iðkendum okkar ánægðum. Það minnkar verulega brottfall ef iðkendur fá jákvæða upplifun af æfingum og starfinu, það sé fjölbreytni og að þetta sé skemmtilegt.   Sýnum þessu góða verkefni samstöðu og fjölmennum á þennan hádegisfund iðkendum okkar til heilla.