Lesa frétt

Aðgerðaráætlun ÍR gegn einelti

Í dag 1. desember verður tekin í gildi "Aðgerðaráætlun Íþróttafélags Reykjavíkur - gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun". Við ætlumst til þess að allir innan ÍR fari eftir þessu og er þetta gert til þess að allir iðkendur sem og aðrir sem að félaginu koma geti fundið að hugsað sé vel um þá. Þessi áætlun hefur verið samþykkt af stjórnum deilda, aðalstjórn og eineltisteymi ÍR.
Áætlunina má nálgast hér.

Með von um að áætlun þessi verði til þess að gera félagið enn betra og öllum iðkendum sem og öðrum líði enn betur hjá félaginu.

Hörður, framkvæmdastjóri ÍR