Lesa frétt
2. flokkur karla hjá ÍR haustmeistari KRR í knattspyrnu

Strákarnir okkar í 2. flokki í knattspyrnu gerðu sér lítið fyrir og unnu Fram í bráðskemmtilegum úrslitaleik á ÍR-velli þriðjudaginn 10. nóv sl. Aðstæður voru eins og þær gerast bestar á þessum árstíma, logn og smá rigningarúði. ÍR-ingar náðu forystunni og komust í 2-0 áður en Framarar náðu að skora en þeir jöfnuðu skömmu fyrir leikslok. Gripið var til framlegningar en ekkert mark var skorað og þurfti að útkljá þennan skemmtilega leik í vítaspyrnukeppni. Það er skemmst frá því að segja að Brynjar markvörður okkar varði allt sem á markið kom og varð því hetja liðsins ásamt öllum hinum að sjálfsögðu. Okkar menn spiluðu einum færri alla framlenginguna og eiga því hrós skilið fyrir frábæra framistöðu.
Góð byrjun hjá flokknum og vonum við að þeir haldi áfram á sömu braut.
Áfram ÍR