Lesa frétt
12 réttir til ÍR-tippara
Það var glatt yfir einum ÍR-tippara eftir leiki í ensku deildinni laugardaginn 24. okt.sl. Sá fékk 12 rétta sem gaf honum um 800.000 kr. Sá hinn sami fékk álíka upphæð í fyrra hjá okkur. Það má því með sanni segja að þegar fólk kemur til okkar og tippar er ekki einungis verið að styðja við bakið á öflugu forvarnarstarfi sem íþróttirnar eru, heldur er alltaf möguleiki á að fá þann STÓRA.
Við hvetjum alla til þess að koma og tippa með okkur því þetta er leikur sem allir geta tekið þátt í. Það þarf enginn að hafa vit á knattspyrnu til að taka þátt.
Látið sjá ykkur og það er alltaf heitt á könnunni