Lesa frétt

Lokahóf yngriflokka.

Það er stefna knd. ÍR að allir iðkendur fái gjöf frá knattspyrnudeildinni í lok keppnistímabils  og að auki eru veitt einstaklingsverlaun í eldriflokkum. Einstaklings verlaunin eru veitt til efnilegasta leikmanns flokksins, bestu ástundun, háttvísi jafnt innan sem utan vallar og síðan að lokum fyrir framfarir á eldra og yngra ári. Eftir að hver flokkur var kallaður upp að svið þá stillti hópurinn sér upp í myndatöku ásamt þjálfara eða aðstoðarmanni. Því miður áttu ekki allir þjálfarar kost á að vera með okkur þennan dag vegna veikinda eða annara ástæðna.

 

Hjá knattspyrnudeild ÍR eru margir efnilegir iðkendur og því var erfitt að velja þá iðkendur sem fengu að lokum einstaklingsverlaun í eldri aldurshópum. Það voru margir tilvaldir en einungis fáir útvaldir. Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvaða einstaklingar hlutu þessi eftirsóknarverðu verlaun. Við viljum þakka öllum iðkendum/foreldrum fyrir þátttökuna á liðnu knattspyrnutímabili og fyrir allt það óeigingjarna sjálfboðastarf sem foreldrar hafa unnið að á þessu keppnistímabili fyrir iðkendur og félagið.