Lesa frétt

Eldri flokkur karla 30+ "íslandsmeistarar"

Það var mikið um að vera hjá eldri flokk karla hjá ÍR í gærkvöldi þegar þeir spiluðu til úrslita í flokknum 30+. Andstæðingurinn var Keflavík.
Því miður var skrítin staða komin upp fyrir þennan leik þar sem ÍR-ingar gátu ekki mætt í einn leikinn í sumar þar sem þeir einfaldlega náðu ekki í lið ( en það var einmitt á móti Keflavík ). Í reglum KSÍ segir að það lið sem ekki mætir til leiks á keppnistímabilinu geti aldrei orðið meistari. Þess má geta að ÍR-liðið bað um breytingu á þessum leik sem Keflvík neitaði.

 

Þeir sem til þekkja eru nú yfirleitt ekki mikið að gera vesen og færa leikinn sem hentar öllum því að sjálfsögðu er þetta meira til gamans gert og vilja menn fá leiki til að spila. Það er meira gaman heldur en að vinna leikina á því að vera með leiðindi og koma ekki til móts við félögin með því einfaldlega finna annan leikdag.

Við spiluðum í gær til úrslita (sem við hefðum í raun aldrei átt að gera og ekki heldur að spila til undanúrslita).

Í stuttu máli sagt unnum við leikinn eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni og í raun eina liðið sem fór taplaust í gengum sumarið, en urðum samt ekki Íslandsmeistarar. Svolítið skrítið.

Hér er mynd af liðsmönnum en þeir sem skorðuðu fyrir ÍR í úrslitaleiknum voru. Baldvín Jón Hallgrímsson (trukkurinn) og Geir Brynjólfsson (Herbalife Geir) tvö mörk. í vítakeppninni skoruðu Geir, Jón Þór og Baldvin.

Við viljum þakka öllum sem studdu okkur í sumar og fær þjálfari liðsins Hallgrímur (Benites) Friðgeirsson rós í hnappagatið en þetta er hans fyrsta tímabil sem þjálfari og fer hann ósigraður í gegnum það með stæl, geri aðrir betur. Einnig hefur framkvæmdastjóri ÍR verið honum til halds og trausts og hlaupið í skarðið og stjórnað liðinu af mikilli röggsemi :-)

Til hamingju strákar, þið eruð lang flottastir og besta lið á Íslandi í 30+.