Lesa frétt

Búið að loka fyrir umsóknir í Magnúsarsjóðinn

Nú hefur verið lokað fyrir umsóknir í Magnúsarsjóðinn en það er afreks- og styrktarsjóður okkar ÍR-inga. Alls bárust að þessu sinni 15 umsóknir. Nú eru næstu skref að fara yfir umsóknirnar en ráðstafað verður úr sjóðnum síðar í þessum mánuði og verður það auglýst hér inná heimasíðunni.