Lesa frétt
Eldri flokkur karla (30+) komnir í úrslit
Það varð ljóst í gær að eldri flokkur karla 30+ kæmust í úrslit eftir að þeir sigruðu Víking í undanúrslitum 4-1. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Víking en kallarnir breyttu um "taktík" eftir að liðstjóri liðsins talaði hraustlega við þá í hálfleik og skoruðu 4 mörk í seinni hálfleik og áttu Víkingar í raun aldrei möguleika. Þeir munu leika gegn Keflavík í úrslitum en þeir sigruðu "stjörnuliðið" Carl í undanúrslitum eftir vítakeppni. Fyrr í sumar spiluðu ÍR-ingarnir við Keflavík en þeim leik lauk með jafntefli 4-4 þannig að við búumst við hörkuleik. Úrslitin fara fram miðvikudaginn 14. okt.
Til hamingu með þetta strákar.