Lesa frétt
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar 2009
Uppskeruhátíð knd.ÍR
2009
Hin árlega uppskeruhátíð eldri iðkenda, foreldra, foreldraráða og annara velunnara. Verður haldin laugardagskvöldið 03. október næstkomandi í ÍR-heimilinu.
Húsið opnar: Kl 19:00
Borðhald hefst: Kl 20:00
Matseðill kvöldsins: Vegabráð með óuppteknum þykkvabæjar kartöflum og tásveppum. Svínaflensa með öllu meðfylgjandi.
Veislustjóri kvöldsins: Gunnar Örn Gunnarsson ÍR-ingur með meiru.
Nánari dagskrá: Verður ekki gefin upp fyrr en um kvöldið. En í það minnsta happadrætti - viðurkenningar og skemmtiatriði í boði húmorista félagsins.
Húsið opnar eftir borðhald: Kl 22:00
Miðar eru seldir í Leiksport Hólagarði hjá Braga frá og með 29. september.
Miðasölu lýkur kl 18:00 föstudaginn 2. október.
Miðaverð: 2500kr með mat.
Miðaverð eftir borðhald: 1000kr
|
Eins og undanfarin ár þá verður margt um manninn!
Því hvetjum við alla að kaupa miða tímanlega