Lesa frétt

Umsóknir óskast í Magnúsarsjóð

Menntunar- og afrekssjóður ÍR, Magnúsarsjóður, er samstarfsverkefni afkomenda Magnúsar Þorgeirssonar og Íþróttafélags Reykjavíkur. Þann 15.september var opnað fyrir móttöku umsókna í sjóðinn. Umsóknarfrestur er til 30.september. Úthlutun fer fram í október, nánari dagsetning verður auglýst síðar. Umsóknareyðublað má nálgast hér
Reglugerð, markmið og úthlutunarskilyrði sjóðsins má sjá hér. Hér má einnig finna upplýsingar um afreksstefnu ÍR. Umsóknir sendist á Sigrúnu Grétu íþróttafulltrúa ÍR, á netfang: sigrun@irsida.is. Athugið að nauðsynlegt er að formaður eða gjaldkeri viðkomandi deildar samþykki umsóknina.