Lesa frétt
Flugeldasala ÍR og Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík

Knattspyrnudeild ÍR og Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík standa að sameiginlegum rekstri flueldasölu árin 2009 til 2012 og verður öll sala áfram í felagsheimili ÍR að Skógarseli 12. Samstarf þessara aðila hófst um síðustu áramót og gekk það mjög vel.
Áfram verður leitast við að þjóna félagsmönnum og Breiðholtsbúum sem og öðrum landsmönnum. Þetta er einn liður í því að sameina krafta tveggja góðra aðila við að efla tekjur í sínum forvarnar- og velferðarmálum.
Hér má sjá þá Braga Björnsson varaformann Knattspyrnudeildarinnar og Stéfan Þór Þórsson fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar undirrita samninginn nú á dögunum.