Lesa frétt

Laugardagar verða Getraunadagar hjá ÍR !

Opið frá kl. 11 - 13  alla laugardaga í vetur á 2. hæð ÍR heimilinu.  Heitt á könnunni og snarl.
Við ætlum að hefja getraunastarfið 12. september og þá byrjum við að skrá hópa til leiks. Hópaverðið er 2.500 kr. Allir geta tippað óháð því hvort þeir eru í hópaleiknum eða ekki. Hópaleikurinn byrjar svo 19. september svo það er eins gott að vera búinn að hóa vinunum saman og ákveða hvaða deildir eigi að styrkja í vetur. Hvetjum alla til að koma í ÍR heimilið og sitja hér einn og einn laugardag og skrá inn raðir.  Allir velkomnir til að leggja hönd á plóginn því margar hendur vinna létt verk.
Allur ágóði tippsins rennur til íþróttahreyfingarinnar. Það mikilvægasta er að haka við 109 á seðlinum svo ágóðinn skili sér til ÍR. Enn færri vita hinsvegar að því að ef tippað er í ÍR-heimilinu sjálfu rennur enn meiri prósenta til okkar góða íþróttastarfs.
Með getrauna-kveðju og hlökkum til að sjá sem flesta í ÍR-heimilinu á laugardaginn kemur.
Getraunanefndin