Lesa frétt

ÍR spjall

ÍR spjallið er komið í gagnið. Þar munu allar níu deildir ÍR hafa sér spjallsvæði. Notendur þurfa að logga sig inn til að geta tekið þátt í umræðum og skrifað nýja spjallþræði. Vert er að geta þess að spjallinu er stjórnað af skrifstofu ÍR sem mun hafa eftirlit með efni sem þarna fer inn. Tekið er strangt á öllu sem ekki á heima undir merkjum íþrótta- og æskulýðsstarfs. Það er von okkar að ÍR-ingar munu eiga góð og gagnleg samskipti á spjallsvæðinu í framtíðinni.