Lesa frétt

Æfingatöflur og gjöld á komandi vetri

Sigrún Greta íþróttafulltrúi er í óða önn að fá skýrari mynd á æfingatíma vetrarins í samstarfi við deildir ÍR, ÍBR, íþróttahúsin og skólastjóra grunnskólanna í Breiðholti. Töflugerðin er mikið púsluspil og mun skýrast endanlega í lok ágúst/byrjun september. Við munum birta æfingatöflurnar og gjöldin hér á heimasíðunni um leið og hægt er. Fylgist því með undir æfingatöflur hér til hægri.