Lesa frétt
5.fl. ÍR með gull á N1 móti, Akureyri 2009

Fjórir frábærir dagar í sól og hita, við góðar aðstæður, spiluðu strákarnir í D liði 5. flokks til sigurs og lönduðu gulli með miklum glæsibrag, í hörku góðum úrslitaleik. Önnur lið ÍR í 5. flokki komust því miður ekki á verðlaunapall en allir skemmtu sér vel og stóðu sig með sóma.
Í heild var mótið allt til fyrirmyndar og ekki skemmdi veðrið fyrir. Tjaldsvæði ÍR var í mjög fallegu umhverfi í Kjarnaskógi.
Hér má sjá nokkrar
myndir af strákunum í E liði 5. flokks og aðstandendum þeirra, ásamt myndum af verðlaunaafendingunni.
Hér eru einnig
kvikmyndir af tveim leikjum hjá strákunum.
Ævar B. Jak.