Lesa frétt

ÍR vann 1-0 sigur á Þór

ÍR er komið í 7.sæti eftir að hafa unnið Þór í gærkvöldi á ÍR-vellinum. ÍR komst yfir 1-0 eftir rúmar 8 mínútur. Eftir markið sóttu Þórsarar mikið. Í síðari hálfleik átti ÍR-liðið í vök að verjast en náðu að halda markinu hreinu allan leikinn. Þórsarar áttu skalla í slá eftir að venjulegum leiktíma var lokið en það kom ekki að sök. ÍR vann góðan sigur á Þór 1-0.
Nánari umfjöllun má sjá á fotbolti.net.