Lesa frétt
Fjörkálfar í frjálsum og fótbolta

Nú fer námskeiði tvö senn að ljúka og hefur þetta verið mikið ævintýri. Krakkarnir hafa margir hverjir verið að spreyta sig í fyrsta sinn í íþróttagreinunum og sést að þau hafa langflest bætt sig frá fyrsta degi og áhugahvötin orðin meiri.
Námskeiðin eru byggð upp þannig að krakkarnir fái jákvæð fyrstu kynni af íþróttagreinunum tveimur og skemmtun sé í fyrirrúmi, en í bland við fótboltann og frjálsar eru ýmsir skemmtilegir leikir og æfingar. Í lok hvers námskeiðs er síðan grillveisla þar sem við grillum pulsur og veitum viðurkenningar fyrir námskeiðið. Þriðja og seinasta námskeiðið byrjar 6.Júlí og stendur til 19.júlí og eru öll börn velkomin á aldrinum 6-12 ára.
Langar okkur að benda á að myndir frá námskeiðunum má sjá undir
Myndasafn hér til vinstri.