Lesa frétt
Aðalfundur Knattspyrnudeildar 15.mars kl.20:00
Aðalfundur Knattspyrnudeildar ÍR verður haldinn fimmtudaginn 15.mars kl.20:00 í ÍR heimilinu Skógarseli 12. Allir ÍR-ingar sem vilja leggja sitt af mörkum í starfsemi deildarinnar á næsta keppnistímabili eru hvattir til þess að mæta.
Þeir sem vilja gefa kost á sér í stjórn eða gegna ákveðnum hlutverkum fyrir deildina, eru beðnir að setja sig í samband við Ídu formann deildarinnar,
ida@sjaland.is eða s:690-1237
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir árið 2011.
4. Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosning formanns.
6. Kosning annarra stjórnarmanna.
7. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á aðalfund félagsins.
8. Ákveðið æfingargjöld.
9. Önnur mál.
Stjórnin.