423fdceddc8c82















Lesa frétt

Minningarleikur um Hlyn Þór Sigurðsson á föstudaginn kl.18 (ÍR-Leiknir).

Meistaraflokkar ÍR og Leiknis í fótbolta mætast á föstudaginn í minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson á ÍR-vellinum klukkan 18:00. Í fyrsta sinn með Andra Marteins og Willum sem þjálfara þessara tveggja liða.

Frítt er á leikinn en frjáls framlög eru vel þegin í minningarsjóð Hlyns. Hvetjum við því alla til að mæta. 

Hlynur, var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum störfum innan félagsins.

Hann gerði ekki bara marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.

 

Í sumar var haldið mót fyrir yngri flokka sem kallast Hlynsmót og er stefnt að því að hafa það sem árlegan viðburð en það gekk vel fyrir sig í sumar þar sem skipt var í deildir úr Evrópu í stað A, B, C eða D liða.

Það var þá enska, ítalska, spænska og þýska deildin.

 

Á föstudaginn mætast Breiðholtsliðin ÍR og Leiknir í nágrannaslag klukkan 18.00 á gervigrasi ÍR-inga. Frítt er inn á leikinn en fólki er frjálst að gefa framlag í minningarsjóð Hlyns.

 

Félögin hvetja sem flesta til þess að styrkja málefnið og í leið sjá hörkuleik í Breiðholtinu á föstudaginn.