Lesa frétt
Tveir mikilvægir leikir framundan í knattspyrnu
Á þriðjudaginn spila strákarnir í meistaraflokk karla við Fjölni. Þessi
leikur er gríðarlega mikilvægur en sem stendur er ÍR í 4.sæti 1.deildar
með 29 stig, aðeins 3 stigum frá öðru sæti. Fjölnir er í 5.sæti með 25
stig og ætla sér auðvitað stig í Breiðholti.
Strákarnir eiga svo aftur leik á föstudaginn á móti toppliði Leiknis.
Óhætt er að segja að þetta verði „derby“ slagur af bestu gerð. Leiknir
hefur spilað vel í undanförnum leikjum og eru í efsta sæti deildarinnar
með 34 stig þegar þetta er skrifað. Það er ekki langt fyrir ÍR-inga yfir
á Leiknisvöllinn, mætum á völlinn og styðjum við ÍR.....
Mætum á völlinn og styðjum strákana. Stuðningur þinn
skiptir máli eins og sjá má á viðtali ÍR-frétta við Axel Kára (nálgast
má viðtalið með því að smella
hér). Það er ekkert annað en hrein
skemmtun að mæta á völlinn í góðum félagsskap og styðja liðið sitt –
ÁFRAM ÍR!
þri. 17. ágú 19:00 1. deild karla ÍR-völlur ÍR - Fjölnir
fös. 20. ágú 19:00 1. deild karla Leiknisvöllur Leiknir R. - ÍR