Lesa frétt
Leikur hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu

Strákarnir í meistaraflokki ÍR í knattspyrnu taka á móti HK á ÍR-velli klukkan 19:00 í kvöld (föstudagskvöld). Seinasti leikur þessara liða endaði með markalausu jafntefli en búast má við að bæði lið ætli að spila til sigurs í kvöld. ÍR er í fjórða sæti deildarinnar og með sigri í kvöld halda þeir sér í toppbaráttunni. HK er í 8. sæti um miðja deild.
Mætum á völlinn í kvöld og styðjum strákana í toppbaráttunni.
ÍR - HK á ÍR-velli kl.19:00 ÁFRAM ÍR