Lesa frétt
Leikur hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu

Í kvöld (miðvikudag) spila strákarnir í meistaraflokki karla við KA á Akureyri. ÍR er í 4. sæti með 23 stig og er í bullandi toppbaráttu. Þessi leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur ÍR-inga því við megum ekki við því að misstíga okkur mikið í þessari hörðu baráttu.
Ekkert lið fer til Akureyrar og hirðir þar auðveldlega 3 stig og því er von á hörkuleik í kvöld. KA menn sitja í 9. sæti með 13 stig, aðeins 2 stigum frá fallsæti.
Fyrri leikur þessara liða sem fram fór á ÍR-velli endaði með 2-1 sigri ÍR en það voru þeir Karl Brynjar Björnsson og Haukur Ólafsson sem skoruðu mörk ÍR í þeim leik.
KA - ÍR, kl.19:00 á Akureyrarvelli... ÁFRAM ÍR