Lesa frétt
Leikur hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu

Á föstudaginn fá ÍR-ingar Gróttu í heimsókn. Við ÍR-ingar erum í fjórða sæti í bullandi toppbaráttu með 19 stig. Fyrir ofan eru 3 lið sem öll eru með 22 stig.
Grótta er í neðsta sæti deildarinnar sem gefur ekki rétta mynd af liðinu því oft hafa þeir verið óheppnir í sínum leikjum. Það má því segja að Grótta sé sýnd veiði en ekki gefin.
Þetta verður án efa hörkuleikur enda mikið í húfi fyrir bæði lið. ÍR-ingar ætla sér ekkert annað en sigur í þessum leik og halda sér þannig í toppbaráttunni.
Frábær veðurspá, flottur fótbolti og góður "stemmari". Mætum á völlinn og styðjum strákana.... ÁFRAM ÍR
- ÍR - Grótta, kl.20:00 á ÍR-velli