Lesa frétt
100 ára saga Íslandsmótsins
Fyrst var keppt um Íslandsbikarinn 1912 á Íþróttavelli Reykjavíkur
vestur á Melum. Þá tóku þrjú lið þátt í mótinu - Fótboltafélag
Reykjavíkur (KR), Fram og Knattspyrnufélag Vestmannaeyja, KV. Það voru
KR-ingar sem fögnuðu meistaratitlinum þetta ár.
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur ákveðið að gefa sögu
Íslandsmótsins út í bundnu máli í tilefni tímamótanna og hefur Sigmundur
Ó. Steinarsson, blaðamaður, verið fenginn til að skrá söguna, sem á að
vera hin glæsilegasta.
Leit er byrjuð að gömlum myndum og hefur hún gengið ágætlega. Allir
þeir sem hafa í fórum sínum gamlar myndir, eða vita um gamlar myndir -
eru beðnir að hafa samband við Sigmund (GSM 669 1304), eða láta vita hér
á síðunni -
http://www.facebook.com/pages/100-ara-saga-Islandsmotsins-i-knattspyrnu/140325259318152
- eða senda tölvupóst til Sigmundar; 100.knattspyrna@gmail.com.
Glötum ekki sögunni - ef þið vitið um gamlar knattspyrnumyndir í
albúmum eða ýmsa gamla knattspyrnumuni, látið vita. Var pabbi eða afi
ykkar á ferðinni á upphafsárum knattspyrnunnar? Hann á það skilið að fá
að vera með - að vera kallaður fram í sviðsljósið á nýjan leik, þegar
Saga Íslandsmótsins kemur út 2011!
* Hver mynd á sér sögu. Ef sú saga er ekki skráð með myndinni, er og
verður myndin gagnlaus í framtíðinni og þá ónýt. Engin veit hvenær hún
var tekin og hverjir eru á henni.
Verum vakandi um söguna - varðveitum hana.