Lesa frétt
Mikilvægur leikur hjá meistaraflokki karla í knattspyrnu

Föstudaginn 9. júlí fer meistaraflokkur karla í knattspyrnu á Skagann og spilar við ÍA. ÍR-ingar eru sem stendur í 3. sæti 1.deildar og ætla sér sigur gegn sterku liði ÍA. ÍA er í 7. sæti þannig að búast má við hörkuleik á Akranesvelli.
Veðurspáin er flott og því er ekkert til fyrirstöðu að taka smá rúnt njóta ferðarinnar og horfa á flottan fótbolta. ÍA – ÍR kl.20:00 á Akranesvelli.
ÁFRAM ÍR!