Lesa frétt

ÍR-ingar á toppi 1. deildar

ÍR-ingar endurheimtu toppsæti 1. deildar með sigri á grönnum sínum úr Leikni í Mjóddinni í kvöld. Heimamenn komust í þægilega tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en gestirnir minnkuðu muninn í uppbótartíma eftir að hafa átt nokkur ákjósanleg færi á lokamínútum leiksins.

Liðin hafa því sætaskipti en halda áfram að leiða deildina og hafa nú tveggja og þriggja stiga forystu á næsta lið úr Fossvoginum.

Leikurinn byrjaði fjörlega en fyrsta markið kom strax á fjórðu mínútu upp úr skyndisókn heimamanna. Boltinn barst á Kristján Ara Halldórsson sem stóð við miðjan völlinn og sendi inn fyrir vörn gestanna þar sem Árni Freyr Guðnason skaut sér fram fyrir varnarmann Leiknis og átti skot að marki sem Eyjólfur Tómasson náði að verja en hélt þó ekki svo Árni Freyr náði frákastinu og skoraði af öryggi í síðari tilraun sinni.

Heimamenn byrjuðu leikinn mun betur og hefðu getað aukið forystuna tæpum tíu mínútum síðar. Þá barst boltinn til Árna Freys inni í teig Leiknismanna sem stóð af sér varnarmann og lagði boltann út á Sindra Snæ Magnússon en skot hans fór hátt yfir markið.

Heppnin var svo með heimamönnum eftir stundarfjórðungs leik. Þá fengu þeir aukaspyrnu við vítateigshornið hægra megin. Kristján Ari tók aukaspyrnuna og sendi lágan bolta á nærstöngina þar sem Sindri Snær hljóp yfir boltann og fipaði Eyjólf í markinu sem missti boltann inn. Klaufalegt mark og heimamenn komnir með þægilega forystu.

Eftir markið jafnaðist leikurinn og gestirnir komust meira inn í hann en þeir voru ekki líklegir fyrr en rétt undir lok hálfleiksins en þá fékk Helgi Pétur Jóhannsson sendingu inn fyrir vörn ÍR en Þorsteinn Einarsson bjargaði með góðu úthlaupi.

Á lokamínútu hálfleiksins átti Ólafur Hrannar Kristjánsson skot að marki sem Þorsteinn var salí rólegur yfir en boltinn endaði þó í slánni og fór þaðan yfir markið. Eftir þetta var blásið til hálfleiks en í honum gerði Sigursteinn Gíslason tvær breytingar á sínu liði sem mætti varla til leiks í fyrri hálfleik.

Síðari hálfleikur hefði getað byrjað með svipuðu móti og sá fyrri eftir að Árni Freyr fékk boltann inni í teig Leiknismanna eftir hraða sókn heimamanna. Árni var aleinn inni í teignum og hafði sjálfsagt meiri tíma en hann gerði sér grein fyrir en skot hans úr upplögðu færi fór framhjá markinu en þarna hefði Árni getað gert út um leikinn.

Fimm mínútum síðar fengu Leiknismenn sitt besta færi til þessa í leiknum en það kom eftir hornspyrnu þar sem Halldór Kristinn Halldórsson skallaði boltann rétt framhjá markinu.

Leikurinn var í járnum eftir þetta og fátt markvert gerðist í þónokkurn tíma. Leiknismenn reyndu hvað þeir gátu að sækja á ÍR-inga sem vörðust fimlega og sóttu hratt á móti. Hvorugu liðinu tókst þó að skapa sér færi þar til um tíu mínútum fyrir leikslok að boltinn barst til Kristjáns Páls Jónssonar inn í teig eftir að ÍR-ingar höfðu sparkað boltanum í bak eins Leiknismanns. Kristjáni brást þó bogalistinn og skaut boltanum með tánni framhjá markinu.

Á lokamínútu leiksins fékk Brynjar Benediktsson háa sendingu inn í teig ÍR-inga og stóð af sér varnarmenn heimamanna en skot hans úr markteignum fór á ótrúlegan hátt framhjá markinu.

Brynjar gerði þó ekki sömu mistökin tvisvar því stuttu seinna lenti hann í svipuðum aðstæðum eftir að boltanum var sparkað langt inn í teig eftir aukaspyrnu og eftir klafs í teignum náði Brynjar að slengja fætinum í boltann og koma honum inn fyrir marklínuna.

Þónokkur spenna var því á lokamínútum leiksins en því miður fyrir gestina voru þær ekki nægilega margar og ÍR-ingar stóðu því uppi sem sigurvegarar í þessum topp- og grannaslag.

Maður leiksins: Halldór Arnarsson (ÍR).
Dómari: Örvar Sær Gíslason.
Áhorfendur: Tæplega 500.
Aðstæður: Logn og skýjað.

 

Frétt fengin af Fótbolti.net