Lesa frétt
Mikið að gerast hjá fótboltanum í dag/kvöld og næstu daga
Mikið að gerast hjá fótboltanum í dag/kvöld og næstu daga
16. júní: Það er svo sannarlega mikið um að vera hjá knattspyrnudeild ÍR þessa dagana. Meistaraflokkur kvenna spilar við Fjölni á ÍR-velli í kvöld (16.júní) og byrjar leikurinn klukkan 20:00. ÍR-stelpurnar eru staðráðnar í að koma sér aftur á sigurbraut. Mætum í kvöld og styðjum stelpurnar.
17. júní: Meistaraflokkur kvenna í fótbolta verður með sölubás á 17. júní í Austurstræti næst Ingólfstorgi. Þetta er frábært tækifæri til þess að styðja stelpurnar en þær hafa lagt á sig mikla vinnu innan vallar sem utan undanfarnar vikur. Endilega kíkjum í sölubásinn þeirra og verslum hjá þeim.
18. júní: Óhætt er að segja að þá fari fram stórleikur hjá strákunum í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Þá fá ÍR-ingar nágranna okkar í Leikni í heimsókn. Staðan í deildinni er þannig að Leiknir er í efsta sæti en ÍR í öðru sæti. Toppslagur milli nágranna gefur góð fyrirheit, mætum á völlinn og styðjum ÍR til sigurs og þannig endurheimta efsta sæti 1.deildar!
ÁFRAM ÍR