Lesa frétt

Spennandi fótboltaleikir framundan

Meistaraflokkur karla. Föstudaginn 11.júní fara ÍR-ingar í heimsókn í Grafarvog og mæta þar Fjölni. ÍR-ingar eru sem áður efstir í 1.deild með 13 stig eftir fimm leiki. Liðið hefur bætt sig mikið síðan í fyrra og má þar helst nefna betri varnarleik. ÍR-ingar hafa aðeins fengið á sig 4 mörk í þessum fimm leikjum sem verður að teljast nokkuð gott. Fjölnir er í fjórða sæti með 9 stig eftir fimm leiki en Fjölnir hefur gert þrjú jafntefli, unnið tvo og ekki tapað leik. ÍR-ingar ætla sér að halda áfram að sigurbraut og halda efsta sætinu en það sækir enginn þrjú stig auðveldlega í Grafarvoginn. Mætum á Fjölnisvöllinn klukkan 20:00 á föstudaginn og styðjum strákana til sigurs.
Fjölnir – ÍR, kl.20:00 Fjölnisvelli.

Meistaraflokkur kvenna. Laugardaginn 12.júní leggja stelpurnar land undir fót og mæta Sindra á Sindravelli. ÍR stelpurnar eru í þriðja sæti riðilsins með 9 stig eftir fjóra leiki og ætla sér ekkert annað en sigur. Sindri er í 6. sæti deildarinnar með 3 stig. ÍR-stelpurnar töpuðu seinasta leik og stefna nú að nýju á sigurbraut.
Sindri – ÍR, kl.16:30 Sindravellir.

ÁFRAM ÍR!