Lesa frétt

Fótbolti: ÍR-Fjarðabyggð á laugardaginn

Á laugardaginn (5. júní) fá ÍR-ingar Fjarðabyggð í heimsókn. Það er óhætt að segja að ÍR-ingar séu heitir þessa dagana enda efstir í 1.deild. Fjarðabyggð er í 10.sæti og ætla sér án efa að ná sér í stig.

Þetta verður spennandi leikur sem enginn ÍR-ingur ætti að missa af. Mætum á völlinn í veðurblíðu og styðjum strákana til sigurs.

ÁFRAM ÍR!