Lesa frétt
Tveir mikilvægir fótboltaleikir á miðvikudaginn

Miðvikudaginn 2.júní verður mikið um að vera í fótbolta hjá ÍR-ingum.
Meistaraflokkur kvenna fær Selfyssinga í heimsókn og byrjar leikurinn klukkan 20:00 á ÍR-vellinum. Meistaraflokkur kvenna hefur byrjað tímabilið frábærlega en þær eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og ætla sér ekkert annað en sigur gegn Selfyssingum. Stelpurnar eiga svo sannarlega skilið að fá góðan stuðning á miðvikudaginn. Mætum á völlinn og tökum þátt í þessari sigurgöngu með þeim.
Strákarnir eiga erfitt verkefni fyrir höndum en þeir mæta úrvalsdeildarliði Fram á Laugardalsvellinum klukkan 19:15 í VISA-bikar keppni karla. ÍR-ingar eru búnir að vera sjóðheitir í 1.deild það sem af er sumri og eru efstir eftir 4 leiki með 10 stig. Fram hefur byrjað tímabilið vel í úrvalsdeild og eru í öðru sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 leiki. Það er því óhætt að segja að leikurinn verði mjög áhugaverður, liðið sem er efst í 1.deild og liðið sem situr í öðru sæti í úrvalsdeild.
Mfl.kv ÍR – Selfoss, kl.20:00 á ÍR-vellinum
Mfl.ka Fram – ÍR, 19:15 á Laugardalsvelli (VISA-bikar karla)
ÁFRAM ÍR!!