Lesa frétt
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu

Í kvöld spila stelpurnar í meistaraflokk ÍR sinn þriðja leik í deildinni. ÍR vann fyrstu tvo leikina og eru efstar í deildinni. Í kvöld spila stelpurnar á móti Fram á Framvelli. Fram er í fjórða sæti deildarinnar með eitt stig eftir einn leik. Þetta verður án efa hörkuleikur og ætla ÍR stelpurnar sér ekkert annað en sigur og tryggja sig þannig í efsta sæti.
Veðurspáin er flott í kvöld og því ekkert til fyrirstöðu að mæta á Framvöllinn, njóta veðursins og styðja ÍR til sigurs.
Fram - ÍR, kl.20:00 á Framvelli