Lesa frétt
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu

Föstudaginn 28.maí spila strákarnir í meistaraflokki ÍR við HK á Kópavogsvelli. ÍR-ingar eru efstir í deildinni með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Þessi frábæra frammistaða hefur vakið verðskuldaða athygli og nú ætla strákarnir að hamra járnið meðan það er heitt og vinna fjórða leikinn í röð. HK eru þó ekki neinir byrjendur í knattspyrnu enda aðeins tvö ár síðan þeir spiluðu í efstu deild (2008). HK er sem stendur í 5.sæti deildarinnar með 6 stig eftir þrjá leiki.
Það er stutt að fara úr Breiðholti yfir í Kópavog, fjölmennum á völlinn!
HK-ÍR á Kópavogsvelli kl.20:00 föstudaginn 28.maí
ÁFRAM ÍR!