Lesa frétt
Góð byrjun í fótboltanum
Þá má með sanni segja að ÍR byrji þetta fótboltasumar frábærlega. Strákarnir í meistaraflokk karla unnu á laugardaginn sinn þriðja leik í röð þegar þeir lögðu KA menn á ÍR-velli 2 – 1. ÍR trónir nú á toppi 1.deildar með 9 stig, fullt hús stiga eftir þrjá leiki.
Meistaraflokkur kvenna spilaði bæði á laugardag og mánudag og unnu þær báða leikina. Á laugardaginn unnu þær Hött 2 – 3 á Fellavelli og á mánudaginn unnu þær Fjarðarbyggð/Leikni 1 – 4 á Norðfjarðarvelli. Þessir tveir sigrar hafa skilað þeim í efsta sæti deildarinnar.
Þetta verður því án efa spennandi fótboltasumar hjá ÍR-ingum. Ekki er hægt að segja annað en að ánægja og tilhlökkun ráði ríkjum í Breiðholti þessa dagana enda sitja bæði ÍR-liðin á toppi sinna deilda.