Lesa frétt
Tveir flottir fótboltaleikir laugardaginn 22.maí

Á laugardaginn verða tveir flottir fótboltaleikir.
Meistaraflokkur karla spilar sinn fyrsta heimaleik í sumar. Liðinu hefur gengið frábærlega það sem af er og er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Á laugardaginn taka ÍR-ingar á móti KA. ÍR-ingar ætla sér að vinna þennan leik og mæta ferskir til leiks eftir tvo sigra í röð. Fyrir leik verður smá upphitun á ÍR-svæðinu og verður meðal annars hoppukastali á svæðinu fyrir börnin. Það er um að gera að mæta á svæðið með alla fjölskylduna og styðja ÍR til sigurs í þriðja leiknum í röð.
Meistaraflokkur kvenna spilar á móti Hetti á Fellavelli. Þetta er fyrsti leikur stelpnanna í deildinni og auðvitað ætla þær sér sigur í fyrsta leik enda hafa þær æft að krafti yfir sumarið.
ÍR – KA, ÍR-völlur kl.14:00 (mfl.ka)
Höttur – ÍR, Fellavöllur kl.15:00 (mfl.kv)
ÁFRAM ÍR