Lesa frétt

Tveir frábærir leikir um helgina!!

Njarðvík - ÍR (1.deild karla)
Meistaraflokkur karla fer til Njarðvíkur og keppir þar við heimamenn. Njarðvík tapaði fyrsta leiknum gegn Leikni og mæta án efa dýrvitlausir til leiks. Við unnum Gróttu í fyrsta leik 1 - 2 og stefnan er sett á annan sigur sem yrði góð byrjun á mótinu í ár.
Föstudaginn 14.maí, Njarðvík - ÍR, Njarðtaksvelli kl.20:00

ÍR - Tindastóll (VISA-bikar kvenna)
Á laugardaginn fer fram fyrsti heimaleikur ÍR í sumar. Þar taka stelpurnar í meistaraflokki ÍR í knattspyrnu á móti Tindastól. Stelpurnar eru búnar að vera duglegar að æfa í vetur og mæta öflugar til leiks. Það er um að gera að mæta á völlinn og ná upp stemningu fyrir komandi tímabil. Allir að mæta á fyrsta heimaleik ÍR í sumar
Laugardaginn 15.maí, ÍR - Tindastóll, ÍR-völlur kl.14:00

ÁFRAM ÍR