Lesa frétt
Sigur í fyrsta leik

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá ÍR spilaði sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu á sunnudaginn. ÍR-ingar sigruðu þar spræka Gróttumenn 1-2. ÍR-ingar byrjuðu vel og náðu að skora strax á 10. mínútu og var þar að verki
Kristján Halldórsson. ÍR hélt þessu forskoti ekki lengi en á 18. mínútu jöfnuðu Gróttumenn metin þegar ÍR-ingar urðu fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Rétt fyrir leikslok gerðu varnarmenn Gróttu sig seka um slæm mistök og upp úr því skoraði
Árni Freyr Guðnason gott mark. Ekkert var skorað í seinni hálfleik þó bæði lið hafi fengið færin til þess.
Niðurstaða: Þessi leikur lofar góðu fyrir framhaldið. Þrjú stig í hús gegn spræku Gróttuliði er eitthvað til þess að byggja á. Næsti leikur er gegn Njarðvík (14.maí) í Njarðvík sem verður án efa erfiður leikur. Njarðvík tapaði fyrir Leikni í fyrstu umferð og munu því örugglega berjast eins og ljón fyrir fyrstu stigum sínum í deildinni í ár.